Staðfestir að Courtois vilji fara

Thibaut Courtois vill fara til Real Madrid.
Thibaut Courtois vill fara til Real Madrid. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea ætlar ekki að ræða við Real Madrid um sölu á Thibaut Courtois, markmanni liðsins, fyrr en félagið finnur annan í hans stað. Umboðsmaður Belgans vill hins vegar að Chelsea leyfi honum að yfirgefa félagið. 

„Ég hef lesið alls staðar að Chelsea segi að þetta snúist um hvað Thibaut vill, en hann hefur sagt forráðamönnum Chelsea að hann vilji fara til Madrid.

Hann vill vera nálægt fjölskyldunni sinni og Chelsea er með tilboð sem félagið ætti að samþykkja," sagði Christophe Henrotay, umboðsmaður Courtois, við Sky. 

„Þetta snýst ekki um peninga, hann hefur hafnað stærri tilboðum annars staðar frá. Hann vill vera með börnunum sínum í Madrid,“ sagði Henrotay enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert