Courtois skrópaði á æfingu

Thibaut Courtois vill komast burt frá Chelsea en hann er …
Thibaut Courtois vill komast burt frá Chelsea en hann er orðaður við Real Madrid þessa dagana. AFP

Thibaut Courtois, markmaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea á Englandi, mætti ekki á æfingu liðsins í dag en það er Sky Sports sem greinir frá þessu. Courtois vill komast burt frá Chelsea en hann er sterklega orðaður við stórlið Real Madrid þessa dagana.

Samningur hans við Chelsea rennur út næsta sumar og hefur Belginn ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið. Chelsea er hins vegar tilbúið að missa hann frítt næsta sumar og halda honum hjá félaginu í eitt ár í viðbót.

Courtois er að snúa aftur til Chelsea eftir sumarfrí en hann fékk lengra frí en aðrir leikmenn liðsins þar sem að hann spilaði um þriðja sætið með Belgum á HM í Rússlandi í sumar. Belgar unnu 2:0-sigur á Englandi í leik um þriðja sætið á mótinu í Pétursborg en Courtois var valinn besti markmaður mótsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert