Real Madrid hefur boðið Chelsea að fá króatíska miðjumanninn Mateo Kovacic að láni gegn því að enska félagið selji markvörðinn Thibaut Courtois í hina áttina.
Kovacic, 24 ára, hefur gengið illa að vera í byrjunarliði Real undanfarin ár og er félagið tilbúið að leyfa honum að fara til Chelsea út næsta tímabil til að greiða leiðina fyrir kaupum á Courtois sem vill ólmur snúa aftur til Spánar, þar sem hann lék með Atletico Madrid um árabil.
Samningur Courtois rennur út eftir næsta tímabil og hefur hann ekki látið sjá sig á æfingasvæði Chelsea undanfarna tvo daga en enska félagið ætlar þó ekki að selja hann fyrr en það finnur arftaka fyrir Belgann.