Courtois til Real og Kovacic til Chelsea

Thibaut Courtois verður orðinn leikmaður Real Madrid þegar hann mætir …
Thibaut Courtois verður orðinn leikmaður Real Madrid þegar hann mætir á Laugardalsvöll með belgíska landsliðinu í næsta mánuði. AFP

Enska knattspyrnufélagið Chelsea greindi frá því í kvöld að félagið hefði selt belgíska landsliðsmarkvörðinn Thibaut Courtois til Evrópumeistara Real Madrid.

Í tilkynningu Chelsea segir að Courtois eigi eftir að semja við Real um kaup og kjör en það virðist aðeins formsatriði. Kaupverðið er ekki gefið upp en króatíski miðjumaðurinn Mateo Kovacic kemur til Chelsea frá Real að láni í eitt ár sem hluti af kaupverðinu.

Mateo Kovacic hefur verið ósáttur með hlutskipti sitt hjá Real …
Mateo Kovacic hefur verið ósáttur með hlutskipti sitt hjá Real Madrid. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert