Martial var sektaður af United

Anthony Martial.
Anthony Martial. AFP

Knattspyrnumaðurinn Anthony Martial var sektaður af félagi sínu, Manchester United, fyrir að skila sér of seint til æfinga eftir að hafa fengið leyfi til að vera viðstaddur fæðingu sonar síns.

Þetta staðfesti José Mourinho á blaðamannafundi í gær en Martial yfirgaf æfingaherbúðir liðsins í Bandaríkjunum og sneri aftur heim. Hann skilaði sér ekki aftur til félagsins fyrr en rúmri viku seinna en hafði ekki fengið leyfi til að vera svo lengi í burtu.

Samkvæmt fjölmiðlum erlendis nam sektin 180 þúsund pundum eða tæpum 25 milljónum króna. Samband franska sóknarmannsins við Mourinho þykir afar stirt og óvíst hvort hann verði enn leikmaður United þegar félagsskiptagluggum víða í Evrópu verður lokað í lok mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert