Grealish samdi til fimm ára

Jack Grealish.
Jack Grealish. AFP

Jack Grealish hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við enska B-deildarliðið Aston Villa.

Grealish er 23 ára, uppalinn hjá Aston Villa og hefur hann verið talinn einn af efnilegri leikmönnum Englendinga. Hann á að baki 7 leiki með U21 árs liði Englendinga.

Tottenham reyndi að fá miðjumanninn til liðs við sig í sumar og bauð í hann 25 milljónir punda en því boði var hafnað af forráðamönnum Aston Villa.

Grealish er einn af lykilmönnum Aston Villa sem er í 13. sæti ensku B-deildarinnar en með liðinu leikur landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert