Í fyrsta sinn í 12 ár hjá Liverpool

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Liverpool átti ekki eitt einasta skot á mark Napoli í kvöld þegar liðið tapaði fyrir ítalska liðinu 1:0 í 2. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Þetta er í fyrsta skipti frá því í febrúar 2006 sem Liverpool á ekkert skot sem hittir í mark andstæðinganna en það gerðist í leik á móti Benfica sem Liverpool tapaði 1:0.

Lið Liverpool virkaði þungt og þreytulegt í kvöld en það er eins gott fyrir lærisveina Jürgens Klopp að rífa sig upp því um komandi helgi mæta þeir Manchester City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert