Góðar fréttir fyrir Liverpool

Mohamed Salah og Virgil van Dijk tóku virkan þátt í …
Mohamed Salah og Virgil van Dijk tóku virkan þátt í æfingu liðsins í dag. AFP

Paul Joyce, blaðamaður hjá Times á Englandi, greinir frá því í dag að þeir Mohamed Salah og Virgil van Dijk, leikmenn enska knattspyrnufélagsins Liverpool, séu heilir heilsu og klárir í slaginn um helgina þegar Liverpool sækir Huddersfield heim í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Bæði Salah og Van Dijk meiddust í landsleikjahléinu með landsliðum sínum, Egyptalandi og Hollandi, og þá meiddust þeir Naby Keita og Sadio Mané líka. Óvíst er með þátttöku Keita og Mané gegn Huddersfield og þá er James Milner einnig tæpur vegna meiðsla.

„Mohamed Salah og Virgil van Dijk tókuð báðir virkan þátt í æfingu Liverpool í dag. Ef ekkert alvarlegt kemur upp á verða þeir leikfærir gegn Huddersfield á laugardaginn. James Milner, Sadio Mané og Naby Keita eru hins vegar áfram tæpir og óvíst er með þátttöku þeirra í leiknum um helgina,“ sagði Joyce.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert