Jóhann og félagar þurfa að glíma við Bruyne

Kevin De Bruyne.
Kevin De Bruyne. AFP

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að belgíski landsliðsmaðurinn Kevin de Bruyne sé orðinn leikfær á nýjan leik.

De Bruyne hefur aðeins komið við sögu í einum leik með City á leiktíðinni en hann meiddist illa á hné um miðjan ágúst og hefur verið frá keppni síðan þá. Belginn verður í leikmannahópi Englandsmeistaranna á morgun en þá fá þeir Jóhann Berg Guðmundsson og samherja hans í Burnley í heimsókn.

„Ég veit ekki hvort hann byrjar inni á og ég veit ekki hvort hann sé fær um að spila í 90 mínútur. Hann hefur æft vel síðustu tvær vikurnar og ég held að hann komi sterkari til baka. Hann er svo mikilvægur leikmaður fyrir okkur,“ sagði Guardiola.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert