Kante samdi til fimm ára

N'Golo Kante.
N'Golo Kante. AFP

Franski miðjumaðurinn N'Golo Kante er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Chelsea en Lundúnaliðið greindi frá þessum tíðindum í morgun.

Franski heimsmeistarinn er nú samningsbundinn Chelsea til ársins 2023 en hann kom til liðsins frá Leicester árið 2016. Kante kvaddi Leicester eftir að hafa unnið Englandsmeistaratitilinn með liðinu og hann endurtók leikinn með Chelsea og hampaði Englandsmeistaratitlinum með Chelsea í fyrra.

„Þetta eru búin að vera tvö yndisleg ár og ég óska eftir að meira eigi eftir að koma. Frá því ég kom hef ég bætt mig sem leikmaður, hef tekið áskorun og unnið til verðlauna sem ég hugsaði aldrei um,“ segir Kante, sem er 27 ára gamall varnarsinnaður miðjumaður sem hefur skorað 3 mörk í 81 leik í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert