Real Madrid fær Diaz frá City

Brahim Diaz í leik með Manchester City.
Brahim Diaz í leik með Manchester City. AFP

Real Madrid staðfesti í kvöld að það hefði gengið frá kaupum á spænska miðjumanninum Brahim Diaz en hann kemur til félagsins frá Englandsmeisturum Manchester City.

Diaz, sem er 19 ára gamall kantmaður, skrifaði undir sex og hálf árs samning við Evrópumeistarana en samningur hans við Manchester City átti að renna út í sumar. Hann kom til Manchester City frá spænska liðinu Málaga árið 2013 og hefur aðeins fengið að spreyta sig í 5 deildarleikjum með City frá því hann kom til liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert