Zappacosta á leið til Lazio

Davide Zappacosta í leik með Chelsea.
Davide Zappacosta í leik með Chelsea. AFP

Ítalski varnarmaðurinn Davide Zappacosta er sagður vera á leið frá Chelsea til ítalska A-deildarliðsins Lazio.

Að því er ítalskir fjölmiðlar greina frá mun Chelsea lána Zappacosta til Lazio út tímabilið en það hefur síðan möguleika á að semja við hann til frambúðar greiði það Chelsea 13,5 milljónir punda.

Zappacosta, sem kom Chelsea frá ítalska liðinu Torino sumarið 2017, hefur fengið fá tækifæri undir stjórn Maurizio Sarri en ítalski bakvörðurinn hefur spilað samtals 18 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert