Alexander-Arnold gerir fimm ára samning

Trent Alexander-Arnold gerði fimm ára samning.
Trent Alexander-Arnold gerði fimm ára samning. AFP

Enski knattspyrnumaðurinn Trent Alexander-Arnold skrifaði í dag undir nýjan fimm ára samning við Liverpool. Alexander-Arnold er búinn að vera lykilmaður hjá Liverpool á leiktíðinni, en hann kom í gegnum unglingastarf félagsins og spilaði fyrsta leikinn sinn í október 2016. 

Alexander-Arnold hefur spilað afar vel upp á síðkastið og var hann í enska landsliðshópnum á HM í Rússlandi. Bakvörðurinn skrifaði undir langtímasamning sumarið 2017, en hækkar töluvert í launum með nýja samningnum. 

Félagi hans í vörn Liverpool, Andy Robertson, skrifaði einnig undir fimm ára samning við Liverpool í vikunni. Alexander-Arnold verður ekki með Liverpool gegn Crystal Palace í dag þar sem hann er að glíma við hnémeiðsli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert