Liverpool gæti verið án miðvarðarins Virgil van Dijk annað kvöld þegar liðið tekur á móti Leicester í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Það eru ekki meiðsli sem van Dijk er að glíma við heldur veiktist hann í æfingaferð Liverpool til Dubaí í síðustu viku og hefur ekki æft sem skildi síðustu dagana.
Van Dijk hefur verið sérlega öflugur í hjarta varnar Liverpool-liðsins sem er með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Það forskot getur minnkað niður í eitt stig í kvöld takist Englandsmeisturum Manchester City að vinna sigur gegn Newcastle á St. James Park.