Zidane í sigtinu hjá Chelsea

Zinedine Zidane.
Zinedine Zidane. AFP

Ensku blöðin greina frá því í morgun að Chelsea sé með Zinedine Zidane í sigtinu til að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá félaginu.

Framtíð Ítalans Maurizio Sarri er í mikilli óvissu eftir hrakfarir Chelsea-liðsins í undanförnum leikjum en liðið steinlá fyrir Englandsmeisturum Manchester City um síðustu helgi 6:0 og tapaði fyrir Bournemouth fyrir nokkru síðan 4:0.

Zidane er á lausu en Frakkinn ákvað að stíga til hliðar hjá Real Madrid skömmu eftir að liðið tryggði sér Evrópumeistaratitilinn í maí í fyrra.

Chelsea mætir Arnóri Ingva Traustasyni og félögum hans í Malmö í Evrópudeildinni á morgun og tekur svo á móti Manchester United í ensku bikarkeppninni á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert