Brotist inn hjá Mané og verðmæt úr tekin

Sadio Mané var að spila við Bayern München þegar brotist …
Sadio Mané var að spila við Bayern München þegar brotist var inn á heimili hans. AFP

Lögreglan í Merseyside hefur nú til rannsóknar innbrot inn á heimili Sadio Mané, leikmanns Liverpool, en brotist var inn til hans á meðan hann spilaði gegn Bayern München í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í fyrrakvöld.

Að því er fram kemur á vef Sky Sports var enginn í húsinu þegar brotist var inn. Þjófarnir munu hafa stolið úrum, símum og bíllyklum.

Lögregla hefur lýst eftir vitnum eða aðilum sem gætu vitað eitthvað um málið og í yfirlýsingu hennar segir að úrin séu sérstaklega verðmæt.

Einnig var brotist inn til Mané í nóvember árið 2017 þegar hann spilaði gegn Maribor með Liverpool í Meistaradeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert