Mjög sérstakt að spila með van Dijk

Virgil van Dijk átti stórkostlegt tímabil með Liverpool í ár.
Virgil van Dijk átti stórkostlegt tímabil með Liverpool í ár. AFP

Alisson Becker, markmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, segir að það sé sérstakt að deila vellinum með varnarmanninum öfluga Virgil van Dijk. Van Dijk átti frábært tímabil með Liverpool í vetur og var meðal annars valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni af leikmönnum deildarinnar. 

Alisson átti einnig frábært tímabil með Liverpool en þeir voru báðir hluti af afar öflugu varnarteymi Liverpool-liðsins sem fékk á sig fæst mörk allra liða í ensku úrvalsdeildinni. „Hann gerir svo mikið fyrir liðið, bæði innan sem utan vallar. Hann kemur með ró og sjálfstraust og það smitar mikið út frá sér,“ sagði Alisson.

„Þegar þú ert með risann Virgil van Dijk á vellinum hræðir það andstæðinga liðsins. Það er mjög sérstakt að spila með honum og hann er ótrúlegur leikmaður. Ég er með frábæra varnarmenn fyrir framan mig í þeim Matip, Gomez, Lovren og það stóðu sig allir frábærlega en Virgil hefur þessa aukaáru, hann er mjög sérstakur leikmaður,“ sagði Alisson enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert