Ensku knattspyrnufélögin Manchester United og Crystal Palace hafa náð samkomulagi um kaup United á Aaron Wan-Bissaka en það eru enskir fjölmiðlar sem greina frá þessu í dag. Bakvörðurinn öflugi hefur verið sterklega orðaður við United í allt sumar en hann er einungis 21 árs gamall.
United bauð 35 milljónir punda í bakvörðinn fyrr í sumar en því tilboði var umsvifalaust hafnað. Crystal Palace skellti 55 milljón punda verðmiða á leikmanninn og hefur United reynt að ná samkomulagi við Palace, undanfarnar vikur.
Enskir fjölmiðlar greina frá því að United muni borga 47 milljónir punda fyrir Wan-Bissaka og en kaupverðið gæt hækkað í 54 milljónir punda ef leikmaðurinn stendur sig vel í Manchester. Wan-Bissaka spilaði 35 leiki fyrir Palace í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þar sem hann lagði upp þrjú mörk.