United að landa Maguire

Harry Maguire.
Harry Maguire. AFP

Vefur enska blaðsins The Sun segir að Manchester United hafi náð samkomulagi við Leicester City um kaup á miðverðinum Harry Maguire.

The Sun segir að Manchester United muni greiða 80 milljónir punda fyrir Maguire eða sem jafngildir um 12,7 milljörðum króna og hann verður þar með dýrasti varnarmaður heims. United greiðir 60 milljónir punda til að byrja með og 20 milljónir punda til viðbótar við ákveðinn leikjafjölda hjá leikmanninum.

Maguire er sagður gangast undir læknisskoðun hjá Manchester United á morgun. Leicester greiddi 17 milljónir punda fyrir Maguire þegar félagið fékk hann frá Hull fyrir tveimur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert