Chelsea vann í átta marka leik

Christian Pulisic fagnar gegn Salzburg í kvöld.
Christian Pulisic fagnar gegn Salzburg í kvöld. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið Chelsea vann 5:3-sigur á Salzburg frá Austurríki þegar liðin mættust í æfingaleik í kvöld, en þetta var næst síðasti leikur Chelsea á undirbúningstímabilinu.

Christian Pulisic skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og Ross Barkley einu sinni, en Chelsea var 3:0 yfir í hálfleik. Salzburg minnkaði muninn með marki Jerome Onguéné en Pedro og Michy Batshuayi bættu við mörkum fyrir Chelsea. Skipti þá engu þó Takumi Minamino skoraði tvívegis fyrir Salzburg, lokatölur 5:3 fyrir Chelsea.

Chelsea mætir Borussia Munchengladbach í síðasta æfingaleik sínum á laugardag, en fyrsti leikur í ensku úrvalsdeildinni er gegn Manchester United sunnudaginn 11. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert