Robbie Fowler er goðsögn hjá enska knattspyrnufélaginu Liverpool. Fowler lék 266 leiki með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim 128 mörk. Fowler er fæddur og uppalinn í Liverpool og kom í gegnum unglingastarf félagsins.
Eitt magnaðasta augnablik Fowler í treyju Liverpool var gegn Arsenal á heimavelli tímabilið 1994-1995. Hann skoraði þá þrjú mörk á aðeins fjórum mínútum og 33 sekúndum í 3:0-sigri.
Arsenal var með magnaða varnarlínu á þessum tíma. Lee Dixon, Martin Keown, Tony Adams og Nigel Winterburn hræddu flesta sóknarmenn, en ekki Fowler.
Liverpool og Arsenal mætast á Anfield á morgun í ensku úrvalsdeildinni og hitar mbl.is upp fyrir leikinn með minnisstæðum atvikum úr viðureignum liðanna. Þrennu Fowler má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.