Efnilegur táningur framlengir við United

Brandon Williams.
Brandon Williams. AFP

Hinn 19 ára gamli Brandon Williams hefur framlengt samning sinn við enska knattspyrnufélagið Manchester United til ársins 2022 með möguleika á framlengingu um eitt ár til viðbótar. 

Williams, sem er vinstri bakvörður, lék sinn fyrsta leik með aðalliði Manchester United í sigrinum á Rochdale í deildabikarnum. Hann lék einnig í jafntefli við AZ Alkmaar í Evrópudeildinni. Williams skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning fyrir aðeins 18 mánuðum. 

Williams er einn fjögurra leikmanna úr unglingastarfi United sem knattspyrnustjórinn Ole Gunnar Solskjær hefur gefið tækifæri. Tahith Chong, Mason Greenwood og James Garner hafa allir leikið sinn fyrsta leik með aðalliðinu á síðustu mánuðum. 

Luke Shaw hefur verið frá keppni síðan í ágúst og hefur Williams fengið tækifæri í fjarveru enska landsliðsmannsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert