Millimetrum frá því að vinna

José Mourinho á hliðarlínunni á Vicarage Road í dag.
José Mourinho á hliðarlínunni á Vicarage Road í dag. AFP

Tottenham er nú átta stigum frá Meistaradeildarsæti eftir fjórða deildarleikinn í röð án sigurs en liðið gerði markalaust jafntefli gegn Watford á Vicarage Road í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

„Tottenham spilaði vel, við byrjuðum vel og stjórnuðum leiknum,“ sagði José Mourinho, stjóri Tottenham, við BT Sport strax að leik loknum en hann vildi ekki tjá sig um umdeildu atriðin í dómgæslunni.

Heimamenn fengu vítaspyrnu sem fór forgörðum og þá var Tottenham hársbreidd frá sigurmarki í lok leiks þegar boltanum var bjargað á línu. „Marklínutæknin gerir ekki mistök og ég ber mikla virðingu fyrir henni, ég læt það svo eftir sparkspekingunum að tala um VAR. Þetta var góður leikur og við vorum millimetrum frá því að vinna hann.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert