Franski miðjumaðurinn N'Golo Kanté verður ekki með Chelsea í næstu leikjum en knattspyrnustjórinn Frank Lampard staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag.
Kanté fór af velli snemma leiks gegn Manchester United á mánudagskvöldið vegna tognunar og Lampard sagði að reiknað væri með því að hann yrði frá keppni í þrjár vikur.
Chelsea tekur á móti Tottenham í hádegisleik úrvalsdeildarinnar á morgun og framherjinn Tammy Abraham og miðjumaðurinn Ruben Loftus-Cheek koma báðir inn í hópinn á ný eftir að hafa verið meiddir.