Fara stóru strákarnir minnkandi?

Munu leikmenn Sheffield United fagna Meistaradeildarsæti í vor?
Munu leikmenn Sheffield United fagna Meistaradeildarsæti í vor? AFP

Liverpool er vel og innilega úr augsýn á toppnum en útlit er fyrir harða baráttu um hin Meistaradeildarsætin þrjú á lokasprettinum í ensku úrvalsdeildinni. Og nýir og framandi klúbbar knýja dyra. 

Frá því að Meistaradeild Evrópu var sett á laggirnar árið 1992 hafa stóru liðin sex, sem svo eru nefnd, nær alfarið séð um að verja heiður Englands í keppninni. Við erum að tala um Liverpool, Manchester United, Manchester City, Arsenal, Tottenham Hotspur og Chelsea. Á þessu gæti orðið breyting næsta vetur.

Liverpool, sem borið hefur höfuð og herðar yfir önnur lið á Englandi í vetur, verður að sjálfsögðu á sínum stað í Meistaradeildinni veturinn 2020-21 en rauði herinn er sem kunnugt er ríkjandi Evrópumeistari. Allt bendir á hinn bóginn til þess að liðið í öðru sæti deildarinnar, Manchester City, verði fjarri góðu gamni en tveggja ára keppnisbanni í Evrópu var skellt á þá heiðbláu á dögunum vegna bókhaldsóreiðu. City hefur áfrýjað þeim úrskurði en haldi hann mun fimmta sætið í úrvalsdeildinni gefa þátttökurétt í Meistaradeildinni.

Þegar tólf umferðir eru óleiknar í úrvalsdeildinni er Leicester City, sem leikið hefur vel undir stjórn Brendans Rodgers í vetur, í góðum málum í þriðja sætinu, tíu stigum á undan næsta liði. Allt bendir því til þess að „Rebbarnir“ verði öðru sinni í hattinum þegar dregið verður í riðla í Meistaradeildinni næsta haust en Leicester varð sem kunnugt er mjög óvænt enskur meistari í fyrsta og eina skipti árið 2016.

Tvö af stóru liðunum, Chelsea og Tottenham, eru sem stendur í fjórða og fimmta sæti með 41 og 40 stig. Hvorugt lið hefur þó verið sérstaklega sannfærandi í vetur og Chelsea, sem lengi hefur vermt fjórða sætið, verið að fatast flugið. Er til dæmis búið að tapa níu leikjum í deildinni. Eftir afar erfiða byrjun og þjálfaraskipti hefur Tottenham verið að mjaka sér upp töfluna en varð fyrir áfalli um liðna helgi þegar einn af þess marksæknustu mönnum, Suður-Kóreumaðurinn Heung-min Son, varð fyrir meiðslum. Fyrir á hnjasklistanum var markakóngurinn Harry Kane. Án hans hefur Tottenham að vísu vegnað ágætlega, bæði í fyrravor og aftur nú.

Þá komum við að meira framandi nöfnum í stigatöflunni en Sheffield United er öllum að óvörum í sjötta sæti, einu sæti frá þátttökurétti í Meistaradeildinni, að óbreyttu. Sheffield United varð enskur meistari í fyrsta og eina skipti árið 1898, löngu áður en evrópsk lið fóru að reyna með sér. Evrópukeppni meistaraliða, forveri Meistaradeildarinnar, var sett á laggirnar 1955.

Það er sturluð staðreynd og ber hæfileikum knattspyrnustjórans, Chris Wilders, fagurt vitni að þetta litla félag sé að anda ofan í hálsmálið á risunum á Englandi en Sheffield United lék í B-deildinni í fyrra. Dýrasti leikmaðurinn í sögu þess, Norðmaðurinn Sander Berge, kom til liðsins nú í janúar fyrir 22 milljónir sterlingspunda. Svipað verð og Manchester City greiðir fyrir boltastráka. Segi svona!

Harvey Barnes og félagar í Leicester City eiga sæti í …
Harvey Barnes og félagar í Leicester City eiga sæti í Meistaradeildinni næsta víst. AFP


Hitt liðið sem á raunhæfa möguleika á því að leika í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu næsta vetur er Wolverhampton Wanderers en Úlfarnir eru sem stendur í áttunda sæti, fjórum stigum á eftir Tottenham. Þeir eru heldur stærra félag en Sheffield United, þrefaldir Englandsmeistarar, síðast 1959. Úlfarnir voru raunar stórveldi á sjötta áratugnum með menn eins og Billy Wright, fyrrverandi fyrirliða enska landsliðsins, innanborðs en hann varð á sínum tíma fyrsti maðurinn í heiminum til að leika 100 landsleiki. Synd væri þó að segja að risi væri vaknaður, þar sem Úlfarnir hafa hvergi komið nærri titlum um áratuga skeið. Eftir gott gengi á liðinni leiktíð hafa þeir á hinn bóginn spilað í Evrópudeildinni í vetur og vilja að vonum meira.

Nánar er fjallað um baráttuna um Meistaradeildarsætin í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

Úlfarnir áttu stórleik í Evrópudeildinni í vikunni.
Úlfarnir áttu stórleik í Evrópudeildinni í vikunni. AFP
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert