Crystal Palace vann 1:0 sigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurmarkið gerði bakvörðurinn Patrick van Aanholt á 45. mínútu. Sigurinn var sá fyrsti hjá Palace síðan á annan dag jóla.
Valentino Lazaro í liði Newcastle fékk að líta rauða spjaldið í uppbótartíma. Palace hefur 33 stig í 13. sæti en Newcastle 31 stig í 14. sæti.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við símann sport.