Framherjinn framlengir um tvö ár

Shane Long
Shane Long AFP

Knattspyrnumaðurinn Shane Long hefur framlengt samning sinn við Southampton, sem spilar í ensku úrvalsdeildinni, um tvö ár en hann var að verða samningslaus nú í sumar.

Long er orðinn 33 ára en hann gekk til liðs við félagið fyrir sex árum. Hann hefur skorað 27 mörk í 167 leikjum fyrir Southampton en einnig hefur hann spilað fyrir Hull, West Brom og Reading í úrvalsdeild.

Southampton er í 14. sæti deildarinnar með 29 umferðir með 34 stig, sjö stigum frá fallsæti. Deildin hefur göngu sína á ný 17. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert