City að kaupa varnarmann á 50 milljónir

Ruben Dias í leik með portúgalska landsliðinu.
Ruben Dias í leik með portúgalska landsliðinu. AFP

Enska knattspyrnufélagið Manchester City hefur mikinn áhuga á Rúben Dias varnarmanni Benfica. Er City reiðubúið að greiða Benfica 50 milljónir punda fyrir leikmanninn. 

City hefur þegar keypt Nathan Áke í glugganum en knattspyrnustjórinn Pep Guardiola vill þétta raðirnar í vörninni. Gæti Nicolas Otamendi farið í hina áttina en hann er ekki í náðinni hjá spænska stjóranum.

Dias hefur leikið afar vel með Benfica síðan hann komst inn í aðaliðið en hann er uppalinn hjá félaginu. Var hann í HM hóp Portúgala á heimsmeistaramótinu í Rússlandi 2018. 

City hefur einnig verið orðað við Kalidou Koulibaly hjá Napólí og Jules Kounde hjá Sevilla, en Dias er nú helsta skotmark enska félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert