Íslendingalið í beinni á mbl.is

West Ham hefur gengið vel að undanförnu og aðeins tapað …
West Ham hefur gengið vel að undanförnu og aðeins tapað einum af síðustu sjö leikjum í deild og bikar. AFP

West Ham og Burnley mætast í nítjándu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á London Stadium í ensku höfuðborginni klukkan 15 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.

Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn og er á sérvefnum Enski boltinn.

West Ham er í 10. sæti fyrir leiki helgarinnar með 26 stig eftir 17 leiki. Jóhann Berg Guðmundsson og samherjar hans í Burnley eru í 16. sæti með 16 stig úr 16 leikjum og eru fjórum stigum fyrir ofan fallsæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert