Southampton síðasta liðið í 4. umferð

Southampton hafði betur gegn Shrewsbury.
Southampton hafði betur gegn Shrewsbury. AFP

Southampton varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 4. umferð enska bikarsins í fótbolta er liðið vann 2:0-heimasigur á Shrewsbury úr C-deildinni á heimavelli í frestuðum leik. 

Dan N'Lundulu kom Southampton yfir á 16. mínútu og fyrirliðinn James-Ward Prowse innsiglaði 2:0-sigur með marki á 89. mínútu. 

Southampton mætir Arsenal á heimavelli í næstu umferð, en Arsenal er ríkjandi bikarmeistari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert