West Ham upp fyrir Chelsea

Michail Antonio fagnar sigurmarki sínu.
Michail Antonio fagnar sigurmarki sínu. AFP

West Ham fór upp fyrir Chelsea og upp að hlið Everton með 32 stig í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta með 2:1-sigri á West Brom í kvöld. 

Jarrod Bowen kom West Ham yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks en Matheus Pereira jafnaði á 51. mínútu. Michael Antonio reyndist hins vegar hetja West Ham því hann skoraði sigurmarkið á 66. mínútu. 

West Ham er í sjöunda sæti deildarinnar með 32 stig en West Brom er í nítjánda og næstneðsta sæti með ellefu stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert