Veikindi í fjölskyldu fyrirliðans

Pierre-Emerick Aubameyang.
Pierre-Emerick Aubameyang. AFP

Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins af persónulegum ástæðum. Hann kýs nú að greina frá því á samfélagsmiðlum hvað veldur fjarverunni.  

Aubameyang segir móður sína hafa veikst skyndilega og hann hafi þurft að vera til staðar fyrir hana. Útlitið sé nú mun betra og eftir að hafa fundið fyrir miklum stuðningi hjá stuðningsmönnum Arsenal sé hann jafn staðráðinn í því og áður að leggja sitt af mörkum til að góð frammistaða liðsins megi halda áfram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert