Arsenal sneri taflinu við í Leicester

Arsenal vann sanngjarnan sigur á Leicester.
Arsenal vann sanngjarnan sigur á Leicester. AFP

Arsenal vann sterkan 3:1-sigur á Leicester á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Leicester komst yfir snemma leiks en Arsenal svaraði vel og var sigurinn verðskuldaður. 

Youri Tielemans kom Leicester yfir strax á sjöttu mínútu er hann fékk að hlaupa óáreittur upp hægri kantinn og inn í teiginn þar sem hann skilaði boltanum í netið með föstu skoti. 

David Luiz jafnaði með fallegum skalla eftir fyrirgjöf frá Willian á 39. mínútu og Alexandre Lacazette kom gestunum yfir með marki úr víti í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir að Wilfried Ndidi fékk boltann í höndina innan teigs. 

Nicolas Pépé skoraði þriðja mark Arsenal strax í upphafi seinni hálfleiks er hann kláraði af stuttu færi eftir aðra fyrirgjöf frá Willian og þar við sat. 

Arsenal er í níunda sæti deildarinnar með 37 stig og Leicester í þriðja með 49. 

Leicester 1:3 Arsenal opna loka
90. mín. Það verða að minnsta kosti sjö mínútur í uppbótartíma. Nóg eftir! Mikið um meiðsli og tafir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert