Úlfarnir nýttu ekki færin

Conor Coady fékk mjög gott færi til að skora.
Conor Coady fékk mjög gott færi til að skora. AFP

Aston Villa og Wolves skildu jöfn, 0:0, í næstsíðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 

Wolves fékk nokkur úrvalsfæri til að skora sigurmarkið en Emiliano Martínez í marki Aston Villa átti afar góðan leik. 

Besta færið fékk Romain Saiz en hann skaut yfir markið þrátt fyrir að hafa nánast staðið á marklínunni. Conor Coady fékk einnig gott færi til að skora er hann komst einn gegn Martínez en Argentínumaðurinn sá við honum. 

Aston Villa er í níunda sæti með 40 stig og Wolves í 12. sæti með 35 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert