West Ham fékk hitt Manchester-liðið

Leikmenn West Ham fagna sigrinum á Old Trafford í kvöld.
Leikmenn West Ham fagna sigrinum á Old Trafford í kvöld. AFP

Strax og leikjum í 32 liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu lauk í kvöld var dregið til sextán liða úrslitanna.

West Ham lagði Manchester United að velli á Old Trafford í kvöld en þurfa nú að glíma við hitt Manchester-liðið, Englandsmeistara Manchester City, í næstu umferð.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley fá Harry Kane og hans menn í Tottenham í heimsókn.

Þessi lið drógust saman í sextán liða úrslitum:

Chelsea - Southampton
Arsenal - Leeds
Stoke - Brentford
West Ham - Manchester City
Leicester - Brighton
Burnley - Tottenham
QPR - Sunderland
Preston - Liverpool

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert