Fyrstu kaupin hjá nýjum eigendum

Margt hvílir á herðum Kieran Trippier. Heill karlmaður í þessu …
Margt hvílir á herðum Kieran Trippier. Heill karlmaður í þessu tilfelli. AFP

Newcastle United hefur samið um kaup á fyrsta leikmanninum eftir að nýir eigendur eignuðust knattspyrnufélagið.

BBC greinir frá því í kvöld að Newcastle og Atletico Madríd hafi komist að samkomulagi um að bakvörðurinn Kieran Trippier fari á milli félaganna nú í janúar.

Trippier er 31 árs og hefur verið hjá spænsku meisturunum síðan 2019 en var áður hjá Tottenham.

Hann virðist sjálfur hafa samið við Newcastle en á eftir að standast læknisskoðun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert