Arsenal lánar leikmann til Ítalíu

Ainsley Maitland-Niles í leik á móti Liverpool.
Ainsley Maitland-Niles í leik á móti Liverpool. AFP

Knattspyrnumaðurinn Ainsley Maitland-Niles er á leið til AS Roma á Ítalíu á lánssamningi. 

Maitland-Niles leikur með Arsenal eins og stuðningsmenn liðsins þekkja og er á leið í læknisskoðun á Ítalíu. Roma og Arsenal hafa komist að samkomulagi um að leikmaðurinn spili með Roma út þetta keppnistímabili. 

Jose Mourinho stýrir Roma og er öllum hnútum kunnugur á Englandi. 

Maitland-Niles hefur komið við sögu í ellefu leikjum með Arsenal í vetur og hefur tvisvar verið í byrjunarliðinu í deildarleikjum. Hann reifaði áhyggjur sínar opinberlega af stöðu sinni hjá félaginu snemma á tímabilinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert