West Ham þurfti mörg færi í kvöld áður en liðið náði að brjóta ísinn og sigra Bournemouth 2:0 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Kurt Zouma skoraði loks eftir skallabaráttu í vítateignum undir lok fyrri hálfleiks og Said Benrahma innsiglaði sigurinn úr vítaspyrnu undir lok leiksins.
Mörkin má sjá í meðfylgjandi myndskeiði en leikurinn var sýndur beint á Símanum Sport.