Finnst sem ekkert muni breytast ef hann opnar sig ekki

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP/Ander Gillenea

„Hann veit að ummæli sín verða umdeild en honum finnst hann þurfa að tjá sig,“ sagði fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan í viðtali við TalkSport í dag, um einkaviðtal sitt við Cristiano Ronaldo sem birt verður í heild sinni í vikunni.

Brot úr viðtali Morgan við Ronaldo hófu að birtast í gær.

„Hann elskar Manchester United og stuðningsmenn liðsins en honum finnst sem ekkert muni breytast ef hann opnar sig ekki.“

Manchester United hefur ekki svarað ummælum Ronaldo formlega en Sky Sports birti fréttir af því í morgun að knattspyrnustjórinn og leikmenn liðsins væru vonsviknir með uppátæki Portúgalans.

Piers Morgan.
Piers Morgan. Ljósmynd/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert