Hafnaði Manchester United

David De Gea á lítið eftir af samningi sínum við …
David De Gea á lítið eftir af samningi sínum við Manchester United. AFP/Paul Ellis

Spænski knattspyrnumarkvörðurinn David De Gea hafnaði í dag nýju samningstilboði frá Manchester United. Samningaviðræður munu þó halda áfram, en núgildandi samningur Spánverjans rennur út í sumar.

De Gea er launahæsti markvörður heims í dag, en hann þénar rúmlega 375.000 pund á viku, eða rúmar 63 milljónir króna.

The Athletic greinir frá að United vilji lækka De Gea í launum, þar sem hann er orðinn 32 ára. Vegna þessa sé Spánverjinn að hugsa sín mál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert