Everton nálgast Chelsea (myndskeið)

Everton vann 2:0 sigur á Chelsea í 16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag, en vandræði Chelsea halda áfram í deildinni.

Everton er nú komið upp úr fallsætum deildarinnar eftir að tíu stig voru dregin af þeim fyrir brot á reglum deildarinnar um hagnað og sjálfbærni í rekstri. Everton er nú í 17. sæti deildarinnar, sex stigum á eftir Chelsea sem er í 12. sætinu. 

Mörk og tilþrif má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr ensku úrvalsdeildinni í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert