Gylfi Einarsson og Bjarni Þór Viðarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum Sport, en fjallað er um ensku úrvalsdeildina í fótbolta í þættinum.
Manchester United tapaði 3:0 gegn Bournemouth um helgina í 16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en Bruno Fernandes, fyrirliði liðsins, fékk gult spjald og tekur því út leikbann næstu helgi þegar liðið fer í heimsókn á Anfield og mætir Liverpool.
Gylfi Einarsson var ósáttur með Bruno og segir hann verða að passa sig betur þegar hann veit að hann er einu gulu spjaldi frá leikbanni.
Umræðurnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.