Brassinn sá um Tottenham (myndskeið)

Brasilíski miðjumaðurinn Joao Gomes skoraði bæði mörk Wolverhampton Wanderers í 2:1-sigri á Tottenham Hotspur á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Gomes kom Úlfunum yfir í fyrri hálfleik áður en Dejan Kulusevski jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks.

Brassinn skoraði svo sigurmarkið eftir rúmlega klukkutíma leik.

Mörkin þrjú má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert