Dýrmætur sigur Forest (myndskeið)

Taiwo Awoniyi og Callum Hudson-Odoi skoruðu mörk Nottingham Forest þegar liðið vann góðan 2:0-sigur á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í í knattspyrnu í dag.

Awoniyi skoraði á fimmtu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks og Hudson-Odoi á fjórðu mínútu uppbótartíma síðari hálfleiks.

Mörkin tvö má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert