Hvaða þrenna er eftirminnilegust? (myndskeið)

Í rúmlega þriggja áratuga sögu ensku úrvalsdeildarinnar hefur fjöldi leikmanna skorað eftirminnilegar þrennur.

Cristiano Ronaldo, Luis Suárez, Robin van Persie, Sergio Agüero, Dennis Bergkamp og Dimitar Berbatov eru á meðal þeirra sem hafa gert slíkt.

Í tilfelli Suárez var að vísu um fernu að ræða fyrir Liverpool og mörkin gegn Norwich City hvert öðru glæsilegra.

Berbatov skoraði þrennu fyrir Manchester United gegn erkifjendunum í Liverpool og þar á meðal sigurmark með magnaðri bakfallsspyrnu.

Í spilaranum hér að ofan eru nokkrar af bestu þrennum ensku úrvalsdeildarinnar rifjaðar upp, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert