Chelsea áfram eftir torsóttan sigur

Mykhailo Mudryk fagnar marki sínu.
Mykhailo Mudryk fagnar marki sínu. AFP/Glyn Kirk

Chelsea vann Leeds, 3:2, í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu karla á Stamford Bridge í London í kvöld. 

Mateo Joseph Fernández kom Leeds yfir á áttundu mínútu leiksins en Nicolas Jackson jafnaði metin stuttu seinna, 1:1. 

Mykhailo Mudryk kom Chelsea yfir á 37. mínútu leiksins en á 59. mínútu var Mateo Joseph Fernández aftur á ferðinni fyrir Leeds og jafnaði metin, 2:2. 

Conor Gallagher tryggði síðan Chelsea sigurinn undir lok leiks með marki á 90. mínútu, 3:2. 

Chelsea mætir Leicester í 8-liða úrslitum bikarsins 16.-17. mars. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert