Mikil dramatík í Manchester (myndskeið)

Alex Iwobi skoraði dramatískt sigurmark fyrir Fulham er liðið vann 2:1-útisigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á laugardaginn var.

Skoraði Iwobi markið á sjöundu mínútu uppbótartímans og tryggði Fulham stigin þrjú. Markið var eitt það besta sem skorað var í deildinni um helgina.

Hér fyrir ofan má sjá önnur eftirminnileg mörk frá helginni í ensku úrvalsdeildinni. Mbl.is færir ykkur efni úr deildinni í samstarfi við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert