Þjóðverjinn Mats Hummels notaði samfélagsmiðilinn X, áður Twitter, til að skjóta á ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.
Ekkert enskt lið er í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eða Evrópudeildarinnar. Eina enska liðið sem er enn í Evrópu er Aston Villa en liðið komst í undanúrslit Sambandsdeildarinnar.
Mats Hummels hafði gaman að því en stuðningsmenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa oftar en ekki verið góðir með sig og kallað sína deild þá bestu í heimi.
Þá hafa þeir kallað aðrar deildir „farmers leagues“ eða deildir fyrir bónda. Hins vegar eru þær deildir með fleiri lið áfram í Evrópumótunum.
„Góð uppskera í vikunni, bændur mínir,“ sagði Hummels einfaldlega á X.
Good harvesting this week my fellow farmers 🤝 🇩🇪
— Mats Hummels (@matshummels) April 19, 2024