Tímamót verða í ensku úrvalsdeildinní í kvöld þegar Crystal Palace tekur á móti Manchester United á Selhurst Park í London.
Dómari leiksins, Jarred Gillet, verður fyrstur til að bera „dómaramyndavél“ í deildinni, en með henni verður hægt að sjá atvikin frá hans sjónarhorni og samskipti hans við leikmenn á meðan leikurinn stendur yfir.
Upptakan verður þó ekki aðgengileg í beinni útsendingu og ekki stendur til að gera þetta á fleiri leikjum í bili en með þessu á að varpa betra ljósi á starf dómara í deildinni.
Þetta var gert í Þýskalandi í febrúar þegar Daniel Schlager dómari var með myndavél og hljóðnema í leik Eintracht Frankfurt og Wolfsburg.
Þá var dómarinn Rob Jones með slíkan búnað þegar Chelsea og Brighton mættust á undirbúningsmóti í Bandaríkjunum síðasta sumar.
Premier League referee Jarred Gillet will wear the first "RefCam" used in the league during Crystal Palace vs. Man United 📹
— ESPN FC (@ESPNFC) May 6, 2024
The head-mounted device will provide the referee's point of view on how decisions are made and how he interacts with players 👀 pic.twitter.com/gobIxddtYo