Króatinn Josko Gvardiol braut ísinn og bætti síðan öðru marki við í sigri Englandsmeistara Manchester City á Fulham, 4:0, í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Með sigrinum komst City-liðið á toppinn en ásamt Gvardiol skoruðu Phil Foden og Julian Álvarez mörk City.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.